Síðustu aldamótatónleikarnir

Hljómahöll

6 September

Sale starts

18 October 2024 at 08:38

()

Ekkert er endalaust og allt tekur enda, líka góðar og skemmtilegar hugmyndir. Síðustu aldamótatónleikarnir verða haldnir á þremur stöðum í haust, Reykjanesbæ, Reykjavík og Akureyri. Þau sem fram koma á tónleikunum í Stapanum eru:

Birgitta HaukdalHreimurMagniSverrir BergmannGunni ÓlaEinar Ágúst

Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa verið í hljómsveitum sem voru gríðarlega vinsælar og virkar í kringum síðustu aldamót. Og gott betur en það, því flestir söngvararnir eru enn starfandi sem tónlistarfólk.

Tónleikarnir verða tvískiptir, fyrir hlé munu ballöðurnar og rólegu lögin verða flutt en eftir hlé verður allt gert vitlaust og talið í hverja sprengjuna á fætur annarri.

Hljómsveitarstjóri verður hinn eini sanni Viggi úr Írafár og mun hann ásamt nokkrum af færustu hljóðfæraleikurum landsins sjá til þess að allur flutningur verði upp á tíu.

Forsala miða hefst 23. maí kl 10:00 og verður inn á tix.is/aldamot

Þessir tónleikar eru unnir í góðu samstarfi við Gull léttöl

*Aldamótatónleikarnir er skráð vörumerki hjá Hugverkastofu og í eigu ARG viðburða.

Dates

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger