Vagninn - gagnvirk matarupplifun sem kannar innflytjendamál á nýjan hátt
Vagninn er matarupplifunarverk þar sem íslenskt samfélag er skoðað í gegnum mat og matarmenningu og mun bjóða upp á sérstök afbrigði af hinni klassísku íslensku pylsu, innblásin af hinum ýmsu menningarhópum sem búa á Íslandi - vafin inn í altæka matarupplifun.
Vagninn er tilraun til að auka flæði hugmynda og þekkingar á milli mismunandi menningarhópa á Íslandi og gera það á lifandi og skemmtilegan hátt.
Viðburðurinn er partur af sýningunni Af stað! Go! sem stendur yfir í Norræna húsinu frá 1. des. - 12. jan.
Praktískar upplýsingar
Vinsamlegast vertu viss um að láta okkur vita fyrirfram ef þú ert með matarofnæmi!
Hópurinn á bak við Vagninn:
Sonja Kovacevic - höfundur og leikstjóri
Audrone Satkute - Kokkur
Eleni Podara - listrænn hönnuður
Rebekka A. Ingimundardóttir - listrænn ráðgjafi og dramatúrk
Steindór Grétar Kristinsson - höfundur tónlistar
Aðalborg Birta Sigurðardóttir - Vagninn lógó
Verkefnið er styrkt af mennta- og menningamálaráðuneytinu og leiklistarráði.