Loading…

Persónuverndarstefna Tix Miðasölu

Almennt

Tix Miðasala ehf ("Tix") rekur miðasölukerfi fyrir sölu og umsýslu aðgöngumiða á ýmis konar viðburði og vörur þeim tengdum (hér eftir nefnt "Tix" eða "kerfið"). Þeir sem nota kerfið eru viðskiptavinir Tix (þ.e viðburðahaldarar, skipuleggjendur eða viðburða-, tónlistar-, eða leikhús, hér eftir nefndir "viðburðahaldarar"). Viðburðahaldarar Tix eru ábyrgir fyrir sínum viðburðum en Tix er vinnsluaðili gagnanna. Tix aðstoðar viðskiptavini sína við að selja miða með því að leigja þeim kerfið, birta viðburðina á vefsíðu sinni ofl. Allar spurningar varðandi persónuvernd tiltekinna viðburðahaldara er beint til þeirra.

Söfnun persónuupplýsinga

Tix safnar persónuupplýsingum í tengslum við kaup á miðum á viðburði eða vörur þar sem viðskiptavinur notar kerfið og einnig þegar haft er samband við okkur í gegnum tölvupóst eða facebook.

Notkun persónuupplýsinga

Tix geymir persónuupplýsingar fyrir hönd viðburðahaldara og notar þau í samræmi við gildandi lög.
Þetta þýðir að Tix verndar persónuupplýsingar sem geymdar eru í kerfinu og að þú hefur alltaf rétt á því að hafa samband við Tix til að fá upplýsingar um hvaða persónulegu gögn þín eru geymd hverju sinni. Í þessari stefnu er útskýrt hvernig Tix vinnur persónuupplýsingarnar þínar þegar þú notar kerfið í gegnum tix.is eða í gegnum vefsíðu viðburðahaldara.
Mismunandi viðburðahaldarar eru ábyrgir fyrir mismunandi viðburðum, sem þýðir að mismunandi viðburðahaldarar eru ábyrgir fyrir persónuupplýsingum þínum, háð því á hvaða viðburð(i) þú kaupir miða á.
Tix meðhöndlar persónuupplýsingarnar sem þú gefur upp í tengslum við notkun kerfisins eða í tengslum við hvernig þú hefur samband við okkur. Upplýsingarnar geta verið t.d nafn, netfang, símanúmer, heimilisfang, afmælisdagur, kennitala, kortaupplýsingar eða aðrar upplýsingar sem þú gefur upp þegar þú kaupir miða eða ert í öðrum samskiptum við Tix.

Eyðing persónuupplýsinga

Sjálfsagt er að eyða persónuupplýsingum og óski viðskiptavinur eftir því þá skal hann senda tölvupóst á info@tix.is og með upplýsingum um sig.

Hver er ábyrgur fyrir persónuupplýsingum þínum?

Tix Miðasala ehf (kt. 630914-0190, Ránargata 18, 101 Reykjavík) svarar fyrir erindi er varða persónuupplýsingar og er ábyrg fyrir hönd viðburðarhaldara (þess sem á gögnin), fyrir vinnslu persónuupplýsinga og að þær séu unnar í samræmi við gildandi lög.

Af hverju notar Tix persónuupplýsingar?

Persónuupplýsingar þínar eru notaðar af Tix til að mögulegt sé að:

Hver hefur aðgang að persónuuupplýsingunum þínum?

Persónuupplýsingar eru unnar af starfsfólki Tix og af tengiliðum sem tengjast persónuvernd hjá viðburðahöldurum. Svo lengi sem það sé engin lagaleg skylda til að birta persónuupplýsingar munu þær ekki verða afhentar þriðja aðila. Tix birtir aldrei eða selur persónuupplýsingar í markaðslegum tilgangi til þriðja aðila. Öllum sem hafa aðgang að gögnum er skylt að vinna aðeins úr þeim í samræmi við GDPR lög nr. 90/2018.

Hversu lengi eru persónuupplýsingar geymdar?

Tix geymir persónuupplýsingar þínar svo lengi sem það er nauðsynlegt til að uppfylla skyldur sem eru fyrir hendi hverju sinni.

Öryggi

Tix grípur til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra ráðstafana til að vernda persónuupplýsingar sem unnið er með. Aðgerðirnar veita öryggi sem er í samræmi við gildandi löggjöf um gagnavernd og er viðeigandi að teknu tilliti til:

Uppfærsla persónuverndarstefnunnar

Tix uppfærir þessa persónuverndarstefnu reglulega og er nýjasta útgáfan alltaf aðgengileg á tix.is.

Hafa samband

Tix Miðasala ehf
Ránargata 18, 101 Reykjavík
info@tix.is
s. 551-3800
Persónuverndarstefnan er í gildi frá 21. jan 2020.