Tix.is

Um viðburðinn

Vagninn - gagnvirk matarupplifun sem kannar innflytjendamál á nýjan hátt

Vagninn er matarupplifunarverk þar sem íslenskt samfélag er skoðað í gegnum mat og matarmenningu og mun bjóða upp á sérstök afbrigði af hinni klassísku íslensku pylsu, innblásin af hinum ýmsu menningarhópum sem búa á Íslandi - vafin inn í altæka matarupplifun.

Vagninn er tilraun til að auka flæði hugmynda og þekkingar á milli mismunandi menningarhópa á Íslandi og gera það á lifandi og skemmtilegan hátt.

Viðburðurinn er partur af sýningunni Af stað! Go! sem stendur yfir í Norræna húsinu frá 1. des. - 12. jan

Praktískar upplýsingar

  • Sýningin fer fram á ensku, tekur um 100 mínútur og pláss er fyrir 24 þátttakendur.
  • Aldurstakmark er 18 ára.
  • Miðaverð: 1.670 kr. - Þriggja rétta máltíð er innifalin í miðaverðinu.
  • Kaupa þarf miða fyrirfram hér á tix.is 
  • Ertu vegan? sendu póst á vagninnrvk@gmail.com
  • Allar máltíðir eru unnar af faglærðum kokkum.
  • Ertu með fæðuofnæmi? sendu okkur póst vagninnrvk@gmail.com

Vinsamlegast vertu viss um að láta okkur vita fyrirfram ef þú ert með matarofnæmi!

Hópurinn á bak við Vagninn:
Sonja Kovacevic - höfundur og leikstjóri
Audrone Satkute - Kokkur
Eleni Podara - listrænn hönnuður
Rebekka A. Ingimundardóttir - listrænn ráðgjafi og dramatúrk
Steindór Grétar Kristinsson - höfundur tónlistar
Aðalborg Birta Sigurðardóttir - Vagninn lógó

Verkefnið er styrkt af mennta- og menningamálaráðuneytinu og leiklistarráði.

Viðburðurinn á Facebook