Múlinn Jazzklúbbur: Bölvað braz
Að kvöldi annars sumardags ætlar hrynheitur hópur tónlistarfólks að gera
út frá Brasilíu og reiða fram suðurameríska tónlist ýmiss konar. Þótt
samban komi töluvert við sögu verður tækifærið nýtt rækilega til að
grúska og grúva í fleiri stílum (choro, baião, afoxê og xote þar á meðal),
og verða tónarnir bornir fram á rafhljóðfærabeði.