Loading…

Miðasöluskilmálar

Til að tryggja það að öll geti notið viðburða í Hörpu er mælst til þess að gestir sýni öðrum gestum, sem og starfsfólki, almenna kurteisi í orðum og gjörðum. Harpa áskilur sér rétt til að vísa fólki frá sem sýnir af sér ósæmilega eða ógnandi hegðun og fer ekki að reglum og öryggisleiðbeiningum sem gilda í Hörpu.

Vinsamlegast farið vel yfir miðakaupin þegar þau eiga sér stað, það kemur fyrir að ekki er hægt að leiðrétta miðakaup eftir á. Athugið eftirfarandi vel:

Viðburðir sem eru í sölu hjá miðasölu Hörpu eru á ábyrgð viðburðahaldara, sem í flestum tilfellum er ekki Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús. Viðburðahaldari er ávallt tilgreindur í upplýsingum um viðburðinn á vef Hörpu.

Með kaupum á miða samþykkir kaupandi að fylgja landslögum ásamt reglum og öryggis- leiðbeiningum Hörpu á viðburðinum. Hafi miðakaupandi óþol, ofnæmi og/eða er viðkvæm/ur/t varðandi hávaða, ljós, orðfæri eða annað sem gera má ráð fyrir að komi upp á viðburðum er það á ábyrgð miðakaupanda að kynna sér aðstæður áður en að viðburði kemur. Harpa getur ekki ábyrgst að viðburðahaldari breyti eða bæti við ljósum, reykvél eða öðru á viðburði með skömmum fyrirvara.

Vinsamlega athugið að ekki er alltaf unnt að hleypa gestum inn í sal eftir að viðburður hefst. Við hvetjum miðahafa því til að mæta tímanlega.

Óheimilt er að koma með stórar töskur eða bakpoka á viðburði í sölum Hörpu.

Ekki er heimilt að áframselja miða með fjárhagslegum hagnaði. Ef miði er seldur með fjárhagslegum hagnaði fyrir annan aðila en viðburðahaldara, þá áskilur miðasala Hörpu sér rétt til að ógilda miðann með öllu.

Aldurstakmark á viðburði ræðst af útivistartíma barnaverndarlaga og lögum um vínveitingahús. Börnum yngri en 18 ára er óheimilt að dvelja inni á veitingastað sem leyfi hefur til áfengisveitinga eftir kl. 20.00 á kvöldin og fram til lokunar staðarins nema í fylgd með forsjáraðila. Viðburðahaldara er frjálst að setja annað aldurstakmark ef

Á tiltekna viðburði eru takmörk á því hve marga miða einstaklingur getur keypt. Ef fleiri miðar eru keyptir á sama nafn, kennitölu, netfang eða kreditkort þá áskilur miðasala Hörpu sér rétt til þess að ógilda alla miða sem keyptir eru umfram þann fjölda sem tiltekinn er.

Harpa ábyrgist ekki áminningar um viðburði sem sendar eru með sms og/eða tölvupósti. Það er á ábyrgð kaupanda miða að halda utan um upplýsingar um dagsetningu og upphafstíma viðburðar. Harpa hvetur miðakaupendur til að ganga úr skugga um að upplýsingar er varða símanúmer og/eða netföng þeirra séu rétt skráðar hjá miðasölu. Rétt skráðar upplýsingar tryggja að áminningar berist til miðaeigenda.

Miðasala Hörpu og viðburðahaldari bera enga ábyrgð á persónulegum munum gesta fyrir, á meðan og/eða eftir að viðburði lýkur.

Miðasala Hörpu meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög. Sjá nánar í Persónuverndarstefnu Hörpu.

Endurgreiðsluskilmálar

Ef viðburður fellur niður þá er miðakaupendum boðnir sambærilegir miðar á næstu dagsetningu sé þess kostur eða full endurgreiðsla á miða.

Kaupandi að miða eða gjafakorti hefur 14 daga frá kaupum til þess að falla frá þeim og óska eftir endurgreiðslu. Þetta á við um öll miðakaup, hvort sem um er að ræða kaup af vef Hörpu/Tix eða í miðasölu. Athugið, þetta á aldrei við um aðgöngumiða sem keyptir eru þegar minna en 14 dagar eru í viðburð.

Óski viðskiptavinur eftir endurgreiðslu á miða eða gjafakorti innan 14 daga frá kaupum þarf að senda beiðni í tölvupósti á midasala@harpa.is með nafni, netfangi, símanúmeri og upplýsingum um miðakaup. Ef skilyrði til endurgreiðslu eru uppfyllt þá eru miðakaupin endurgreidd innan 14 daga, með sama greiðslumiðli og notaður var við upphaflegu kaupin.

Almennt um gjafakort

Gjafakort Hörpu gilda í fjögur ár frá útgáfudegi.
Hægt er að nálgast gjafakort rafrænt, sækja í miðasölu eða fá heimsent. Ekki er greitt sendingargjald fyrir heimsend kort.
Ekki er hægt að greiða fyrir gjafakort með öðrum gjafakortum.
Athugið að Sinfóníuhljómsveit Íslands gefur út gjafakort og gilda þau kort eingöngu á viðburðir SÍ en ekki aðra viðburði í Hörpu.

Síðast uppfært 24. maí 2024