Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Unglistakonur II:
Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir sellóleikari og Jane Ade Sutarjo píanóleikari
Dagsetning: 11. ágúst kl 13:00
Salur: Norðurljós
Verð: 2.500 kr
Afsláttarverð: 1.500 kr fyrir eldri borgara og nemendur, ókeypis fyrir 12 ára og yngri

Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir hefur getið sér gott orð sem einn efnilegasti sellóleikari Íslands. Hún stundar nú meistaranám við hinn virta tónlistarháskóla Juilliard í New York en áður lauk hún bakkalárgráðu frá Northwestern University. Árið 2013 lék Geirþrúður Anna einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands og útskrifaðist með einleikarapróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Það sama ár var hún meðal fyrstu þátttakenda Alþjóðlegu tónlistarakademíunnar í Hörpu.

Jane Ade Sutarjo, sem fædd er í Jakarta í Indónesíu, flutti til Íslands árið 2008 og hóf þá framhaldsnám í tónlist við Listaháskóla Íslands. Hún kom fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands 2011 og ári síðar vann hún fyrstu verðlaun í fimmtu píanókeppni Íslandsdeildar EPTA. Jane Ade lauk meistaraprófi frá tónlistarháskólanum í Noregi árið 2017 og starfar nú sem einleikari og meðleikari við Menntaskóla í tónlist, Tónskóla Sigursveins og víðar.

Geirþrúður Anna og Jane Ade eru meðal unglistakvenna Akademíunnar 2019. Á þessum hádegistónleikum munu þær leika saman sónötur fyrir selló og píanó eftir Beethoven og Prokofieff.