Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Þann 8. júní verða haldnir minningartónleikar um Árna Scheving. Margir af fremstu jazztónlistarmönnum landisins munu þar koma saman til að heiðra minningu þessa mikla tónlistarsnillings, sem hefði orðið áttræður þennan dag. Meðal þeirra sem fram koma eru Stórsveit Reykjavíkur, Ragnar Bjarnason, Sigríður Thorlacíus, Guðmundur Steingrímsson, Gammar, Annes, Kvartett Einars Scheving, Þórir Baldursson, Eyþór Gunnarsson, Björn Thoroddsen, Óskar Guðjónsson, Reynir Sigurðsson, Stefán S. Stefánsson, auk framvarðarsveitar ungra jazzleikara.

Aðgangseyrir rennur óskiptur í minningarsjóð Árna, sem mun styrkja efnilega tónlistarmenn til framhaldnáms.