Tix.is

Norræna Húsið

Um viðburðinn

Sýnd í samvinnu við List án Landamæra. 

Kovasikajuttu er heimildarmynd um harðasta pönkband Finnlands, Pertti Kurikan Nimipäivät, sem kom fram á Iceland Airwaves 2016 og tók þátt Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva fyrir hönd Finna árið 2015. Hljómsveitarmeðlimirnir, Pertti, Kari, Toni og Sami eru allir með þroskaskerðingu en spila tónlist sýna með stolti og stælum.  Við fylgjumst með þeim rífast, verða ástfangnir og upplifa sterkar tilfinningar á löngum dögum í hljóðverum og á tónleikaferðalagi.

Kovasikajuttu er kvikmynd um kjarna pönksins sem og saga fólks sem gerir uppreisn gegn viðteknum venjum.  Myndin hefur fengið fjölda verðlauna eins og Besta sjónvarpsheimildarmyndin á Prix Europa í Berlín 2013 og áhorfendaverðlaun á Yamagata heimildarmyndargerðarháðinni í Tókýó 2013.

Sýnishorn

„Hljómsveitarmeðlimir eru fjórir miðaldra, þroskahamlaðir karlar.  Tónlistin er, að sjálfsögðu, finnskt pönk.“  – Sami Helle, Pertti Kurikan Nimipäivät

Enskur texti og aðgangur ókeypis


(FI – 2012) 
Leikstjórar: Jukka Kärkkäinen og  J-P Passi 
1 klst. 25 mín – Heimildarmynd