Tix.is

Norræna Húsið

Um viðburðinn
Paunkholm – Kaflaskil

Útgáfutónleikar Paunkholm í Norræna húsinu 22. október kl. 21

Miðaverð: 2500kr

 

Paunkholm er aukasjálf Franz Gunnarssonar sem á langan feril að baki með hljómsveitum á borð við Ensími og Dr. Spock ásamt því að vinna með t.d. Bang Gang, Quarashi og Bubba Morthens. Kaflaskil er fyrsta sólóplata Paunkholm og þar kennir við nýjan og poppaðri tón hjá Franz sem er þekktur sem rokkari af guðs náð. Á Kaflaskil fær Franz til sín fullt af frábærum röddum og hljóðfæraleikurum og munu flestir þeirra listamanna og kvenna koma fram á útgáfutónleikunum sem fara fram í sal Norræna hússins.

Þetta verður líklegast í eina skiptið sem hópurinn kemur saman og því um einstakan viðburð að ræða. Með hverjum seldum miða fylgir vínyl & stafræn útgáfa af Kaflaskil

 

Söngvarar:

Bryndís Ásmundsdóttir, Erna Hrönn Ólafsdóttir, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Franz Gunnarsson, Guðfinnur Karlsson, Kristófer Jensson, Magni Ásgeirsson, Stefán Jakobsson, Tinna Marína Jónsdóttir.

Hljómsveit:

Gítar: Franz Gunnarsson

Gítar: Einar Vilberg

Sóló gítar: Andri Ívarsson

Bassi: Birgir Kárason

Trommur: Ásmundur Jóhansson

Píanó: Þorbjörn Sigurðsson

Hljómborð: Valdimar Kristjónsson

Slagverk: Þórdís Claessen

Víola: Roland Hartwell

 

https://www.paunkholm.is/