Tix.is

Norræna Húsið

Um viðburðinn

Krilja er tríó frá Gautaborg í Svíþjóð sem spilar hefðbundna sígaunatónlist frá Rússlandi og Austur-Evrópu. Tónlistin er af ótilteknum aldri en oft eru lögin frá 19 öld og síðar og sveiflar á milli ljóðrænnar melankólíu og funheitrar ákefðar. Textar laganna eru á rómatungumáli eða rússnesku og fjalla um sorg, sársauka, fátækt og eymð, en einnig um ást og ástríðu. Útsetningarnarnar eru eigin túlkanir og spuni tónlistarmannana. 

https://www.facebook.com/Krilja/ 


Verið velkomin á Tónleikaröð Norræna hússins alla miðvikudaga í sumar frá 14. Júní til 30. ágúst. Tónleikaröðin inniheldur rjómann af íslenskum djassi og íslenskri þjóðlagatónlist, með smá áhrifum frá latínu- og balkantónlist, sem og góðum gesti frá Svíþjóð. Tónleikaserían einkennist af afbragðs tónlistarmönnum og spannar allt frá hinu melankólíska og lágstemmda yfir í hið ástríðufulla og stórmasama.


Tónleikarnir fara fram í Aðalsal Norræna hússins og miðaverð er 2000 kr.


Dagskrá


14. júní Ragnheiður Gröndal

21. júní Umbra

28. júní Baldvin Snær Hlynsson

5. júlí Krilja

12 júlí Snorri Helgason

19 júlí Tómas R. tríó

26 júlí Stína Ágústsdóttir

2. águst Ragnheiður Gröndal

9. águst Skuggamyndir frá Býsans

16. águst Tómas R. kvartett

23. águst Umbra

30. águst Þorgrímur Jónsson


Miðvikudagar í Norræna húsinu