Tix.is

Norræna Húsið

Um viðburðinn

Umbra Ensemble var stofnað árið 2014 og er skipað atvinnutónlistarkonum sem allar hafa brennandi áhuga á bæði ævafornri og nýrri tónlist. Þær hafa skapað sinn eigin hljóðheim sem hefur fornan blæ og spila þær bæði nýja og gamla tónlist sem þær hafa útsett á sinn eigin hátt. Útkoman er áhrifamikil og töfrandi. Með sínum einstaka hljóm mun Umbra spila eigin útsetningar af Norrænum þjóðlögum. 

www.facebook.com/umbraensemble/ 

Verið velkomin á Tónleikaröð Norræna hússins alla miðvikudaga í sumar frá 14. Júní til 30. ágúst. Tónleikaröðin inniheldur rjómann af íslenskum djassi og íslenskri þjóðlagatónlist, með smá áhrifum frá latínu- og balkantónlist, sem og góðum gesti frá Svíþjóð. Tónleikaserían einkennist af afbragðs tónlistarmönnum og spannar allt frá hinu melankólíska og lágstemmda yfir í hið ástríðufulla og stórmasama. Tónleikarnir fara fram í Aðalsal Norræna hússins.


Dagskrá

14. júní Ragnheiður Gröndal

21. júní Umbra

28. júní Baldvin Snær Hlynsson

5. júlí Krilja

12 júlí Snorri Helgason

19 júlí Tómas R. tríó

26 júlí Stína Ágústsdóttir

2. águst Ragnheiður Gröndal

9. águst Skuggamyndir frá Býsans

16. águst Tómas R. kvartett

23. águst Umbra

30. águst Þorgrímur Jónsson

www.norraenahusid.is