Skip to content

Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Salur opnaður kl. 19:00
Umphrey’s Mcgee kl. 20:30 ( 2 sett )

Segja má að tónlist Umphrey‘s McGee vindi fram eins og ófyrirsjáanlegt samtal milli aldagamalla vina. Liðsmenn hljómsveitarinnar, þeir Brendan Bayliss (gítar, söngur), Jake Cinninger (gítar, söngur), Joel Cummins (hljómborð, píanó, söngur), Andy Farag (trommur), Kris Myers (trommur, söngur) og Ryan Stasik (bassi) eru allir frammúrskarandi hljóðfæraleikarar og eiga einkar auðvelt með að bregðast við og vinna saman, bæði á tónleikasviðinu og í upptökustúdíóinu.

Hljómsveitin gaf í fyrra út elleftu og tólftu breiðskífur sínar, sem menn segja að séu góður vitnisburður um sveitina, „vegna þess að tónlistin flæðir allt frá prog rokki og yfir í danstónlist“ segir Brendan. Hljómsveitin fagnaði 20 ára starfsafmæli með útgáfu platnanna. Í stað þess að líta tilbaka og tína upp vel valdar gersemar úr lagasafni sínu, mættu þeir með tvær plötur með nýjum lögum. „Það hefði verið auðvelt að spila smellina frá fyrstu 5-10 árum“ segir Joel, „en við höfum aldrei verið þannig hljómsveit. Með því að semja nýja tónlist höldum við áfram að þróast.“

Hljómsveitin hefur haldið yfir 2.400 tónleika, gefið út 5 milljón lög og sýnir engin þreytumerki. Þeir urðu fyrstir til að hleypa af stokkunum eigin streymisíðu, UMLive.net, þar sem finna má upptökur frá hverjum einustu tónleikum sem sveitin hefur haldið frá árinu 2005. Þeir tóku upp tíu lög á einum degi í Abbey Road stúdíóinu fyrir The London Session árið 2015. Á plötunni ZONKEY frá árinu 2016 eru leiddir saman hinir ólíklegustu bólfélagar á borð við Radiohead og Beck, Talking Heads og Bob Marley, Metallica og Gorillaz, svo nokkrir séu nefndir.

„Það er eitthvað sem gerir Umphrey’s McGee algerlega einstaka sveit, þannig að menn gætu aldrei ruglast á henni og einhverri annarri“ segir Joel. „Ég vona að tónlistin fái fólk til að hugsa, jafnvel tárast. Kannski brosir þú eða hlærð. Lífið er erfitt. Við teljum samt að tónlist geti læknað og hvatt okkur áfram.“ „Við erum hér“ segir Brendan loks. „Við erum ekki á förum. Við erum rétt að byrja að finna okkar sanna tón.“

www.umphreys.com
www.umphreys.is
https://www.facebook.com/umphreysmcgee