Föstudagsröðin: Sólskinssinfónían – Sinfóníuhljómsveit Íslands
NORÐURLJÓS
Grazyna Bacewicz:
Kvartett fyrir fjórar fiðlur
Johannes Brahms:
Sinfónía nr. 2
Rafael Payare hljómsveitarstjóri
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðla
Una Sveinbjarnardóttir
fiðla
Páll Palomares fiðla
Vera Panitch fiðla
Johannes Brahms samdi aðra sinfóníu sína í sumarleyfi í austurrísku sveitaþorpi sumarið 1877. Það kemur því ekki á óvart að sinfónían sé sérlega ljúf, björt og fögur. Jón Ásgeirsson tónskáld hafði á orði um þessa sinfóníu að hún væri sneisafull af „þeim stefjum sem syngja sig inn í sál manns“. Hér hljómar þetta meistaraverk Brahms undir stjórn venesúelska hljómsveitarstjórans Rafael Payare, sem ólst upp í El Sistema-hljómsveitakerfinu en er nú aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í San Diego.
Á tónleikunum hljómar einnig bráðsnjall kvartett fyrir fjórar fiðlur eftir hina pólsku Grazynu Bacewicz. Hún var afkastamikið tónskáld um miðja 20. öld, samdi kraftmikla nýklassík og var ein fyrsta konan í heiminum til að gegna prófessorsstöðu í tónsmíðum. Kvartettinn er frábær tónsmíð, áheyrileg og fjörug, og hljómar hér í flutningi leiðandi fiðluleikara úr Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Tónleikar Föstudagsraðarinnar í Norðurljósum taka um klukkustund og eru fullkominn upptaktur að skemmtilegri helgi.