Á tónleikum í nýrri Föstudagsröð hljóma tvær tónsmíðar eftir austurevrópsk tónskáld þar sem laglínur eru í forgrunni fremur en úrvinnsla stefja að þýskum sið. Tsjajkovskíj var sannkallaður meistari laglínunnar, átti það sameiginlegt með Chopin að geta spunnið flæðandi hendingar sem eru hlaðnar tjáningu.
Fjórða sinfónía Tsjajkovskíjs er einmitt bæði lagræn og tilfinningaþrungin. Hún var samin á erfiðu skeiði í lífi hans og sjálfur sagði hann að í tónlistinni ættust við tvö öfl: maðurinn og örlög hans – „þetta óstöðvandi afl sem hindrar hamingju okkar.“
Tónskáld úr okkar samtíma sem einnig hefur sett laglínuna í öndvegi er hinn eistneski Arvo Pärt. Hann samdi Spiegel im Spiegel árið 1978 og efniviðurinn gæti ekki verið einfaldari. Úr smáum skrefum fiðlunnar verður til laglína sem kallast á við brotna hljóma píanósins með einsto¨kum og hrífandi hætti.
EFNISSKRÁ
Arvo Pärt
Spiegel im Spiegel
Pjotr Tsjajkovskíj
Sinfónía nr. 4
STJÓRNANDI
Daníel Bjarnason
EINLEIKARAR
Nicola Lolli og
Anna Guðný Guðmundsdo´ttir