Kristinn Sigmundsson er einn ástsælasti söngvari íslensku þjóðarinnar fyrr og síðar og stendur nú á hátindi ferils síns. Hann hefur sungið í mörgum af helstu óperuhúsum heims og nægir þar að nefna La Scala í Mílanó, Ríkisóperuna í Vínarborg, Þjóðaróperuhúsin í París, Metropolitan óperuna í New York og San Francisco-óperuna. Þá hefur hann tekið þátt í nokkrum hljóðritunum með erlendum hljómsveitum, m.a. Töfraflautunni og Don Giovanni með hljómsveit Drottningholm-óperunnar, Mattheusarpassíu og Jóhannesarpassíu Bachs með Orchestra of the eighteenth century og Rakaranum í Sevilla með Útvarpshljómsveitinni í München.
Undanfarna mánuði hefur Kristinn sungið í The Ghosts of Versailles eftir John Corigliano, Brúðkaupi Fígarós og Rakaranum í Sevilla í óperunni í Los Angeles.
Á liðnu hausti steig Kristinn á svið Íslensku óperunnar í fyrsta sinn eftir 12 ára hlé og fór eftirminnilega með eitt voldugasta bassahlutverk óperusögunnar, Filippus konung og föður Don Carlo í samnefndri óperu.
Á tónleikunum syngur Kristinn aríur úr nokkrum af uppáhaldsóperum sínum og bregður sér í hlutverk Don Basilio í Rakaranum frá Sevilla eftir Rossini, greifans í Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart, Bancos úr Macbeth og Sakaríasar í Nabucco eftir Verdi.
Óperukórinn í Reykjavík verður Kristni til halds og trausts á tónleikunum en stjórnandi er fyrrum aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands Rico Saccani sem er annálaður túlkandi óperutónlistar.
EFNISSKRÁ
W.A. Mozart, Gioacchino Rossini og Giuseppe Verdi: Ari´ur, ko´rar og forleikir u´r Bru´ðkaupi Fi´garo´s, Rakaranum i´ Sevilla, Valdi o¨rlaganna, Nabucco og fleiri o´perum
STJÓRNANDI
Rico Saccani
EINSÖNGVARI
Kristinn Sigmundsson
KÓR
Óperukórinn í Reykjavík
Mán | Þrið | Mið | Fim | Fös | Lau | Sun |
---|---|---|---|---|---|---|
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |