Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafa um árabil verið allra vinsælustu og fjölsóttustu tónleikar hennar enda nær hin sígræna og tímalausa Vínartónlist að heilla og kæta mannshjartað kynslóð eftir kynslóð.
Nokkur af dýrustu djásnum valsakónsins Johanns Strauss prýða efnisskrá þessara fyrstu tónleika ársins sem hefjast á forleiknum að óperettunni Leðurblakan og lýkur á Dónárvalsinum. Inn á milli heyrast fleiri fagrir valsar, marsar og polkar að ógleymdum Vínarljóðum, aríum og dúettum sem allir þekkja.
Guðrún Ingimarsdóttir sópransöngkona hefur undanfarin ár búið í Þýskalandi og sungið í óperuhúsum og tónleikahúsum víða um heim. Flutningur óperettutónlistar hefur verið fyrirferðamikill þáttur í starfi Guðrúnar og hefur hún meðal annars sungið á rösklega 100 Vínaróperettu-tónleikum víða um Þýskaland, Austurríki og Sviss og farið í tónleikaferðir með afkomendum Straussfjölskyldunnar.
Elmar Gilbertsson tenórsöngvari var lítt þekkt stærð í íslensku tónlistarlífi þegar hann kom, sá og sigraði í hlutverki Daða Halldórssonar í óperunni Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson en fyrir frammistöðu sína uppskar hann Grímuverðlaunin í flokknum söngvari ársins og Íslensku tónlistarverðlaunin 2014 sem söngvari ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar. Elmar starfar í óperuhúsum víðsvegar um Evrópu.
Sænski hljómsveitarstjórinn Ola Rudner hóf feril sinn sem fiðluleikari. Hann starfaði síðan um árabil sem konsertmeistari Vínarsinfóníunnar og fleiri hljómsveita áður en hann einbeitti sér að hljómsveitarstjórn. Árið 2005 fór Rudner í mikla frægðarför með Johann Strauss-hljómsveitinni til Moskvu og hefur síðan þá oft fetað í fótspor valsakóngsins og stjórnað Vínartónleikum með fiðlu í hönd.
EFNISSKRÁ
Óperettutónlist og valsar eftir Johann Strauss, Franz Lehár og Franz von Suppé, m.a. úr Leðurblökunni og Kátu ekkjunni.
STJÓRNANDI
Ola Rudner
EINSÖNGVARAR
Guðrún Ingimarsdo´ttir
og Elmar Gilbertsson