Sveifla og salsa og allt þar á milli
Sunnudaginn 30. september mun einvalalið söngvara og hljóðfæraleikara flytja úrval af sönglögum Tómasar R. Einarssonar tónskálds og kontrabassaleikara í Kaldalóni, Hörpu. Kristjana Stefánsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Ragnheiður Gröndal, Sigríður Thorlacius og Bógómíl Font syngja og hljóðfæraleikarar eru Tómas á kontrabassa, Ómar Guðjónsson á gítar, Óskar Guðjónsson á tenórsaxófón og Magnús Trygvason Elíassen og Sigtryggur Baldursson á slagverk. Tilefni tónleikanna er útkoma Söngbókar Tómasar R. sem hefur að geyma 50 laga úrval af sönglögum hans.