Sigríður Freyja Ingimarsdóttir mezzosópran heldur einsöngstónleika undir yfirskriftinni Blá lygna-dreyma.
Á efnisskránni eru sönglög og ljóð eftir Rachmaninov og Dvorák. Aríur eftir Purcell, Verdi og Saint-Säens. Sænsk og íslensk sönglög.
Blá lygna-dreyma vísar til söknuðar, ástar, bænar, lífs og vonar.
Sigríður Freyja lauk framhaldsstigi í söng árið 2010 undir handleiðslu Alinu Dubik. Hún hefur sótt söngtíma hjá Snæbjörgu Snæbjarnardóttur, Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og Kristjáni Jóhannssyni. Auk þess hefur hún verið meðlimur í Óperukórnum í Reykjavík. Sigríður Freyja lauk píanókennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2001 og stundaði bæði söng- og píanónám við New England Conservatory í Boston veturinn 2003-2004. Hún stundar nú söngnám hjá Alinu Dubik og starfar sem tónlistarkennari við Tónlistarskóla Garðabæjar.
Meðleikari er Ástríður Alda Sigurðardóttir.
Ástríður Alda píanóleikari lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Önnu Þorgrímsdóttur. Á árunum 2000–03 stundaði hún nám hjá Reiko Neriki við Indiana University en einnig hefur hún sótt námskeið og einkatíma í píanóleik og kammertónlist hjá listamönnum á borð við Geörgy Sebök, Ludwig Hoffmann, Janos Starker, Jürgen Schröder og Olaf Dressler. Ástríður hefur komið víða fram á tónleikum, ýmist sem einleikari eða með öðrum tónlistarmönnum. Árið 2010 gaf hún út sólóplötuna CHOPIN sem inniheldur fjórar ballöður tónskáldsins auk sónötunnar í b-moll. Einnig hafa komið út hljómplöturnar PORTRAIT (2014) með Emilíu Rós Sigfúsdóttur flautuleikara, FIMM Í TANGÓ (2010) og ALDARBLIK (2007) með henni og söngvurunum Eyjólfi Eyjólfssyni og Ágústi Ólafssyni. Ástríður starfar sem tónlistarkennari við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.