Kammersveit Vínar og Berlínar
Hljóðfæraleikarar úr Vínar- og Berlínarfílharmóníunni
Áheyrendur og gagnrýnendur eru sammála um að aðeins tvær hljómsveitir geti talist þær fremstu í heimi: Fílharmóníusveit Vínar og Fílharmóníusveit Berlínar. Gjarnan er lögð áhersla á það sem aðgreinir sveitirnar tvær. Sagt er að Vínarsveitin sé fáguð og tíguleg en Berlínarbúarnir ástríðufullir og hrífandi, að önnur hljómsveitin einkennist af flauelsmjúkum strengjahljóm en hin af mögnuðum einleikurum á blásturshljóðfæri.
Það er því ljóst að stofnun Kammersveitar Vínar og Berlínar heyrir til mikilla tíðinda. Þegar betur er að gáð er líka ýmislegt sem sameinar hljómsveitirnar. Áratugasamstarf við stjórnendur á borð við Wilhelm Furtwängler, Herbert von Karajan, Claudio Abbado (sem voru bæði óperustjórar hjá Ríkisóperunni í Vín og aðalstjórnendur Berlínarfílharmóníunnar) og Sir Simon Rattle hefur sett mark sitt á báðar hljómsveitirnar, auk þess sem því sem næst sömu gestastjórnendur störfuðu með þeim báðum sama árið. Spilamennska beggja hljómsveita einkennist af hárfínni nálgun, miklum sveigjanleika og einstakri hljómfegurð, sem gerir þær einstakar, m.a.s. miðað við rómuðustu hljómsveitir Bandaríkjanna.
Þó að samskipti hljómsveitanna hafi ávallt verið góð er ekkert launungarmál að þær eru keppinautar í tónlistarheiminum. Það var að frumkvæði Sir Simon Rattle sem hljómsveitirnar komu saman í fyrsta sinn, en hann óskaði þess að stjórna sameiginlegum tónleikum þeirra í tilefni af fimmtugsafmælinu sínu. Útkoman var svo góð að ekki var um annað að ræða en að halda samstarfinu áfram.
Upp úr því varð Kammersveit Vínar og Berlínar til. Með henni leika margir af nafntoguðustu hljóðfæraleikurum hljómsveitanna tveggja og segja má að í kammersveitinni megi finna kjarna þeirra beggja. Markmiðið með efnisskránni er að sameina fínleika kammertónlistar og kraft sinfóníusveitar. Samstarfinu er ætlað að vera vettvangur þar sem listamennirnir geta miðlað listsköpun sinni og hugmyndum, þeim sjálfum og áheyrendum til góða.
Rainer Honeck (sem hefur verið konsertmeistari Vínaróperunnar síðan 1984 og Vínarfílharmóníunnar síðan 1992) hefur verið konsertmeistari og listrænn stjórnandi Kammersveitar Vínar og Berlínar frá stofnun hennar.