"Reykjavik Classics New Year´s Celebration”
Um áramótin verða haldnir sérstakir hátíðartónleikar í Eldborg Hörpu undir yfirskriftinni “Reykjavik Classics New Year´s Celebration.” Tónleikarnir sem eru 30 mínútur að lengd án hlés, verða fluttir tvisvar á dag, kl. 12:30 og kl. 15:30 á tímabilinu 27. desember 2016 til 2. janúar 2017.
Á efnisskránni eru hugljúf og dásamleg meistaraverk Jóhanns Sebastian Bach sem göfgað hafa anda kynslóðanna undanfarin 300 ár s.s. Air úr þriðju hljómsveitarsvítunni BWV 1068, Affettuoso úr fimmta Brandenburg konsertinum BWV 1050, Siciliano úr flautusónötu nr. 2 BWV 1031, Prelúdía í C dúr BWV 846 úr WTCI, Jesu, Joy of Man´s Desiring úr Kantötu BWV 147 og hinn óendanlega íhugandi Canon eftir Jóhann Pachelbel.
Sérstakir gestaflytjendur á þessum hátíðartónleikum verða hinir ungu og efnilegu hljóðfæraleikarar Rannveig Marta Sarc, fiðluleikari sem stundar nú nám við Juilliard tónlistarháskólann í New York og Ásta Kristín Pjetursdóttir, víóluleikari sem stundar nú nám við Konunglega Konservatoríið í Kaupmannahöfn. Rannveig Marta og Ásta Kristín hafa hlotið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar og leikið einleik með hljómsveitum s.s. Sinfóníuhljómsveit Íslands, Fílharmóníuhljómsveit Slóveníu og Strengjasveit Tónlistarskólans í Reykjavík auk þátttöku í tónlistarhátíðum innanlands og erlendis. Aðrir flytjendur verða Áshildur Haraldsdóttir, flautuleikari og Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari sem jafnframt er listrænn stjórnandi Reykjavik Classics tónleikaraðarinnar.
Tónleikaröðin Reykjavik Classics hlaut frábærar viðtökur sl. sumar en þá voru haldnir fjölmargir tónleikar í Eldborg með vandaðri dagskrá klassískrar tónlistar. Lögð er áhersla á að varpa ljósi á hinn frábæra hljómburð í Eldborg með flutningi úrvals meistaraverka tónlistarsögunnar á 30 mínútna tónleikum án hlés. Þannig gefst áheyrendum tækifæri til að upplifa salinn og hljómburðinn í tónlistarflutningi fremstu listamanna þjóðarinnar. Miðasala fer fram á Harpa.is og er verð aðgöngumiða kr. 3500.