Skip to content

Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Barokkbandið Brák ásamt söngvurunum Mathias Spoerry og Jóhönnu Halldórsdóttur vilja bjóða áheyrendum í ferðalag, nokkur hundruð ár aftur í tímann, fjarri síbylju og hraða samtímans. Við heimsækjum þá tíma þegar mystíkin og þögnin var ríkjandi og á dimmum og hljóðum vetrarkvöldum var fátt sem gat yljað sálartetrinu líkt og hrein og tær mannsröddin. Miðalda- og endurreisnarsöngvararnir Mathias og Jóhanna eru bæði búsett á Íslandi en hafa sérhæft sig í upprunaflutningi erlendis, Jóhanna í Trossingen í Þýskalandi en Mathias í París Basel. Þau munu flytja ensk sönglög frá endurreisnar og snemmbarokktímanum. Þá munu hljóma tregafull næturljóð við lög John Dowlands og Henry Lawes í bland við tvíradda endurreisnartónlist og meðlimir Barokkbandsins Brákar flytja svo valin hljóðfæraverk frá endurreisnartímanum.

Barokkbandið Brák er skipað hópi ungs fólks sem hefur sérhæft sig að hluta til í upprunaspilamennsku í námi erlendis og vill nýta þessa þekkingu sína til tónleikahalds og verkefna á Íslandi. Elfa Rún Kristinsdóttir er listrænn stjórnandi og leiðari bandsins en hún er margverðlaunaður fiðluleikari og hefur komið fram á tónleikasviðum um heim allan ýmist sem einleikari, konsertmeistari eða kammermúsíkspilari.

Brák hefur verið starfrækt frá árinu 2014, en bandið var stofnað af fiðluleikurunum Elfu Rún Kristinsdóttur, Laufeyju Jensdóttur og Guðbjörgu Hlín Guðmundsdóttur. Barokkbandið hélt sína fyrstu tónleika á Sumartónleikum í Skálholti í júlí 2015 en síðan þá hefur sveitin flutt fjölbreytta tónleikadagskrá og staðið fyrir sex tónleikum í Reykjavík og Skálholti. Sveitin hefur fengið til liðs við sig jafnt íslenska og erlenda hljóðfæraleikara sem allir spila á upprunaleg hljóðfæri frá barokk og endurreisnartímanum. Hefur barokkbandið fengið afar góðar viðtökur á tónleikum sínum hvarvetna og gagnrýnandi morgunblaðsins gaf tónleikum sveitarinnar sem haldnir voru í Norðurljósum í Apríl síðastliðnum fjórar og hálfa stjörnu í gagnrýni sinni sem birtist í blaðinu.

Brák leitast eftir að færa áheyrendum sem fjölbreyttasta mynd af endurreisnar og barokktónlist en sú tónlist spannar langt tímabil í tónlistarsögunni. Á síðustu árum hefur orðið mikil vitundarvakning varðandi svonefndan upprunaflutningi og keppast nú hljóðfæraleikarar um allan heim við að tileinka sér upplýstan flutning á verkum barokktímans til þess að komast nær tíðaranda þessa tímabils. Brákin lætur ekki sitt eftir liggja í þeim efnum og miðar að því að flytja íslenskum áheyrendum þessa tegund tónlistar á sem mest lifandi og innblásinn hátt.