Skip to content

Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Russian Souvenir

Flytjendur:
Lubov Molina - kontraalt
Valeria Petrova - píanó
Alexandra Chernyshova - sópran
Jónina Erna Arnardóttir - píanó

Rússnesk klassísk tónlist hefur heillað heiminn í meira en tvær aldir. Mörgum árum síðar hittust tvær metnaðarfullar söngkonur í alþjóðlegri söngkeppni í Asíu og ákváðu að byggja listræna brú á milli Moskvu og Reykjavíkur með tónleikunum “Russian Souvenir”. Tónleikarnir verða haldnir bæði í Reykjavík og Moskvu, áherslan í Reykjavík verður á rússnesk tónskáld en í Moskvu verður áherslan á íslensk tónskáld.

Efnisskráin inniheldur lög, rómönsur, aríur og senur úr óperum eftir þekkt rússnesk tónskáld. T.d. aríu Olgu eftir Tchaikovsky úr óperunni Eugene Onegin, Vocalise eftir Sergei Rachmaninoff og Næturgalann eftir Alexandr Alyabyev, sem allt eru vel þekkt lög.

Hversu vel þekkirðu rússneska klassíska tónlist?
Flytjendur á tónleikunum vilja með tónlistardagskrá tónleikanna leiða þig, áhorfandi góður, í gegnum þekktar og minna þekktar tónlistarperlur úr rússneskri menningu. Á þessum tónleikum býðst einstakt tækifæri til að njóta tónlistar sem sjaldan er flutt utan Rússlands, allt frá upphafsmanni klassískrar tónlistar, Glinka, til tónskáldsins Prokofiev.