ErraTAK er samvinnuverkefni íslenska listhópsins Errata Collective og bandaríska kammerhópsins TAK, sem kemur alla leið frá New York til þess að frumflytja fjögur ný verk eftir meðlimi Errata.
TAK er hópur hljóðfæraleikara sem sérhæfir sig í flutningi á samtímatónlist, en þau hafa pantað fjölda verka fyrir samsetningu sína; flautu, klarínett, fiðlu, slagverk, sópranrödd og rafhljóð. Errata Collective er hópur fimm tónskálda sem vinna sameiginlega að verkefnum tengdum tónsmíðum sínum. Markmið hópsins er að skapa vettvang ungra tónskálda til að kynna list sína á eins breiðum grundvelli og hægt er, ásamt því að kynna nýar og skapandi leiðir í tónsmíðum og dreifingu.
Fimm verk verða flutt á tveimur tónleikum á Íslandi í júlí. Tónskáldin hafa sótt sér innblástur fyrir verkin úr ýmsum áttum, en dæmi um viðfangsefnin eru frægt einvígi Fischer og Spassky í Reykjavík 1972, rusltölvupóstur, dökkblár Suzuki Baleno og ljóð belgíska skáldsins Henri Michaux.