Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

HOW TO BECOME ICELANDIC IN 60 MINUTES er leiksýning sem leikin er á ensku, samin og framleidd af Bjarna Hauki Þórssyni og leikstýrt af Sigurði Sigurjónssyni. Leikarar eru Karl Ágúst Úlfsson, Örn Árnason og Kjartan Kristjánsson.

HOW TO BECOME ICELANDIC IN 60 MINUTES er sambland af söguleikhúsi og uppistandi þar sem reynt verður að kenna þeim sem sýninguna sækja að verða Íslendingar. Þetta er sprenghlægileg klukkustundarlöng sýning sem ætluð er öllum þeim sem vilja læra hvað það er að vera Íslendingur. Samstarf Bjarna Hauks og Sigurðar ætti að vera íslensku þjóðinni vel kunnugt enda hefur samstarf þeirra getið af sér fimm vinsælar sýningar; Hellisbúann, Pabbann, Afann, How to become Swedish in 60 minutes og Maður sem heitir Ove.