Vínardrengjakórinn: Frá Mozart til Michael Jackson
Listrænn stjórnandi Gerald Wirth. Kórstjóri Manolo Cagnin
Vínardrengjakórinn er einn frægasti drengjakór í heimi og byggir á aldagamalli hefð. Drengirnir hafa sungið í kapellu keisarans í Vín frá árinu 1296. Árið 1498 flutti Maximilian I hirð sína og kapellu til Vínar. Frá þeim tíma hafa kórdrengirnir í Vínardrengjakórnum, ásamt Vínarfílharmóníunni og Vínaróperukórnum, séð um tónlistarflutning í sunnudagsmessum í kapellu keisarans. Tónlistarmenn á við Mozart, Salieri og Bruckner hafa allir unnið við Vínarhirðina; Joseph Haydn, Michael Haydn og Franz Schubert voru sjálfir kórdrengir.
Frá miðöldum hefur Vínarkapellan fylgt keisaranum ??á ferðalögum. Tónleikaferðir eru enn hluti af menntun kórdrengjanna. Frá árinu 1926 hefur Vínardrengjakórinn skipulagt meira en 1000 tónleikaferðir til yfir 100 landa. Í dag er um 100 kórdrengjum á aldrinum 9 til 14 ára skipt í fjóra kóra. Þeir koma fram á yfir 300 tónleikum árlega, sem sóttir eru af meira en hálfri milljón áheyrenda um allan heim.
Utan kapellu keisarans í Vín má njóta söngs Vínardrengjana í tónleikasal þeirra í Muth. Tvær nýlegar heimildamyndir eftir Curt Faudon gefa innsýn í list drengjanna: Lög um Mary (2013) er ævisaga Maríu í ??21 mótettum og lögum og Að byggja brú – styrkurinn í söng kom út á DVD árið 2014.
Efnisskrá tónleikanna er mjög fjölbreytt og flytja drengirnir klassísk verk eftir Mozart sem og poppstjörnuna Michael Jackson.