Skip to content

Tix.is

Harpa

  • 5. október 2025 kl. 16:00

Miðaverð:4.900 kr.

Um viðburðinn

Við bjóðum ykkur velkomin í tónlistarferðalag til sólríkra stranda Miðjarðarhafsins, þar sem lífinu er fagnað með ástríðu, litadýrð og dansi. Dagskráin leiðir áheyrendur um lífleg menningarsvæði Spánar, Grikklands, Ítalíu og Frakklands sem hvert hefur sinn sérstaka tónlistarstíl og húmor.

Tónlistin kemur úr smiðju Enrique Granados, Manuel de Falla, Yannis Konstantinidis, Maurice Ravel og Gioachino Rossini, svo einhverjir séu nefndir og því verður efnisskráin sérlega fjölbreytt og tilfinningarík. Allt frá húmor í lögum Granados, dansandi stemmningar í lögum Rossinis til grísks þjóðlagastíls í söngvum Ravels.

Flytjendur
Nina Basdras, söngur
Margrét Hannesdóttir, söngur
Ásgeir Ásgeirsson, gítar
Hrönn Þráinsdóttir, píanó

Tónleikarnir eru um ein klukkustund, án hlés.