Verkið Eldborg, Harpa eftir Martin Liebscher verður sýnt í opnu rými Hörpu á Menningarnótt.
Eldborg, Harpa er ljósmyndaverk frá árinu 2023 og byggir á rúmlega 5000 ljósmyndum af Martin Liebscher inni í Eldborg sem teknar voru af honum ásamt aðstoðarmanni árið 2022.
Ljósmyndaverkið birtir okkur troðfulla Eldborg í Hörpu þar sem setið er í hverju einasta sæti salarins og gott betur. Sums staðar eru áhorfendur standandi við sviðsbrún og á svölum, jafnvel við það að kasta sér fram af þeim. Áhorfendur / eða réttara sagt áhorfandi því strax er ljóst að um einn og sama manninn er að ræða; mörgþúsund ólík augnablik af sama manninum inni í sama tónleikasalnum, tekin frá sama sjónarhorninu, sem skeytt hefur verið saman í eitt.
Martin Liebscher er fæddur árið 1964 í Þýskalandi og býr og starfar í Berlín og Frankfurt. Hann hefur starfað sem prófessor við Listaháskólann í Offenbach frá árinu 2007. Liebscher nam við Listaháskólann í Frankfurt / Main og við Slade School of Fine Art í London. Hann hefur sýnt verk sín á fjölmörgum einka- og samsýningum og eru verk hans í eigum safna og stofnana svo sem Samtímalistasafnsins í Frankurt, Deutsche Bank, Kunsthalle Bremen, Tampere-borgar í Finnlandi og víðar.