Skip to content

Tix.is

Harpa

  • 23. ágúst 2025 kl. 13:00

Ókeypis

Um viðburðinn

Kórinn Bjartsýni flytur ástsæl sönglög úr ýmsum áttum; sönglög um vor og vináttu, himin og jörð. Tónleikarnir fara fram í rökkvuðu Kaldalóni í upphafi Menningarnætur og vara í tæpar 30 mínútur. Öll eru velkomin og aðgangur er ókeypis. 

Hvar: Í Kaldalóni

Hvenær: 23. ágúst frá 13:00 - 13:30
Fyrir hverja: Allar kynslóðir
Kynningar eru á íslensku
Aðgangur ókeypis
Tónleikarnir eru öllum opnir svo lengi sem það er sætaframboð

Tónleikarnir eru liður í dagskrá Hörpu á Menningarnótt.

-

Kórinn Bjartsýni var stofnaður haustið 2024 og æfir vikulega í húsnæði Blindrafélagsins. Heiðursfélagar í kórnum eru leiðsöguhundarnir Vísir, Gaur og Alex en stjórnendur eru Stefan Sand og Arnhildur Valgarðsdottir. Starfsemi kórsins er styrkt af Blindrafélaginu. 

EFNISSKRÁ Á MENNINGARNÓTT  

VORIÐ KEMUR 
Valgeir Guðjónsson / Jóhannes úr Kötlum 

KVÖLDSIGLING 
Gísli Helgason / Jón Sigurðsson 

SVEITIN MILLI SANDA 
Magnús Blöndal Jóhannsson 

DO RE MI 
Úr söngleiknum The Sound of Music eftir Richard Rodgers og Oscar Hammerstein II

SOFÐU UNGA ÁSTIN MÍN
Íslenskt þjóðlag / Jóhann Sigurjónsson 

VEM KAN SEGLA 
Sænskt þjóðlag 

MAÍSTJARNAN 
Jón Ásgeirsson / Halldór Laxness 

KVÆÐIÐ UM FUGLANA 
Jón Ásgeirsson / Davíð Stefánsson 

SPRENGISANDUR 
Íslenskt þjóðlag / Grímur Thomsen