Karlakórinn Fóstbræður flytur ástsæl sönglög úr öllum áttum fyrir gesti og gangandi á tónleikum í Norðurljósum í Hörpu á Menningarnótt.
Stjórnandi kórsins er Árni Harðarson.
Tónleikarnir hefjast klukkan 16 og vara í um 45 mínútur. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
--
Karlakórinn Fóstbræður hefur starfað samfellt frá haustinu 1916 og eru í dag um 70 söngmenn í kórnum. Kórinn heldur reglulega tónleika og kemur fram á hinum ýmsu viðburðum og ber þar hæst árlegir vortónleikar sem fram fara í Norðurljósum í Hörpu ár hvert.
--
Árni Harðarson hefur verið stjórnandi Fóstbræðra frá árinu 1991. Hann hefur samhliða starfað sem kennari og síðar skólastjóri við Tónlistarskóla Kópavogs. Hann hefur og verið virkur í íslensku tónlistarlífi sem tónskáld og stjórnandi kóra og hljómsveita í ólíkum verkefnum innanlands og utan.