Um viðburðinn
Sandra Lind Þorsteinsdóttir er með meistaragráðu í söng frá Det Kongelige Danske Musikkonservatorium og B.A. í tónlist frá Listaháskóla Íslands. Hún hefur sungið einsöng í verkum svo sem Stabat Mater eftir Pergolesi, Requiem eftir Fauré, Det Hellige Land eftir Otto Malling, sem Pamina/Papagena í Töfraflautunni og í mörgum verkefnum með Flying Theatre. Hún er meðlimur í ELECTRIO, tríói sem samanstendur af söng, gítar og raftónlist.
Frá haustinu 2022 hefur Sandra stundað nám við Syddansk Musikkonservatorium.
Aðgangur er ókeypis og öll innilega velkomin.
Velkomin heim er tónleikaröð á vegum FÍT og FÍH í samstarfi við Hörpu.