Skip to content

Tix.is

Harpa

  • 4. október 2025 kl. 21:00

Miðaverð:10.990 - 12.990 kr.

Um viðburðinn

Komdu á einstaka tónleika tileinkaða goðsögninni Bob Dylan - skáldi, sögumanni og rödd heillar kynslóðar.

Dylan hafði gríðarleg áhrif á tónlistarheiminn þegar hann skaust fram á sjónarsviðið vopnaður kassagítar og munnhörpu og meira að segja Bítlarnir komust ekki undan þessu. Textar hans eru algjörlega einstakir og yrkisefnin eru margvísleg. Hann hefur aldrei slegið slöku við og gefur reglulega út plötur og heldur tónleika víða um heim.  Bob Dylan hefur hlotið 10 Grammy verðlaun og var tekinn inn í Frægðarhöll rokksins árið 1988. Time Magazine hafði hann á lista yfir 100 áhrifumestu einstaklinga 20.aldarinnar.

Meðal þekktra laga tónlistarmannsins má nefna Lay Lady Lay, Blowin In The Wind, Like A Rolling Stone, Just Like A Woman, Hurricane, I Shall Be Released og Knockin' On Heaven's Door.

Söngur:
Valdimar Guðmundsson
Sigurður Guðmundsson
Hildur Vala
Krummi Björgvinsson

Hljómsveit undir stjórn Jóns Ólafssonar:
Jón Ólafsson, hljómborð, munnharpa, raddir
Guðmundur Pétursson, gítarar, raddir
Matthías Stefánsson, fiðla, gítarar
Guðmundur Óskar, bassi, raddir
Þorvaldur Þór Þorvaldsson, trommur