Reykjavík Early Music Festival í samstarfi við Fjölskyldudagskrá Hörpu kynnir:
Krílabarokk
Uppgötvaðu kemmtilegu hliðar Barokktónlistarinnar! Fjölskyldur eru boðnar velkomnar á þátttökutónleika með Nataliu Duarte Jeremias og Önnu Tóth sem leika á barokk strengjahljóðfæri. Komdu og uppgötvaðu hljóm girnistrengja og hreyfðu þig við taktinn í barokkdönsum eftir Purcell, Bach, Geminiani og fleiri.
Nánari upplýsingar um heimsóknir í Hörpu og aðgengismál má finna á heimasíðu Hörpu.
Við viljum upplýsa gesti um að ljósmyndari/upptökumaður á vegum Hörpu gæti verið viðstaddur viðburðinn. Ef foreldrar eða forráðamenn vilja ekki að myndir/myndbönd af börnum þeirra birtist í umfjöllun um viðburðinn á miðlum Hörpu þá biðjum við ykkur vinsamlegast um að láta starfsfólk eða ljósmyndarann vita á staðnum eða í gegnum netfangið markadsdeild@harpa.is