Múlinn jazzklúbbur
Flytjendur
Haukur Gröndal, saxófónn
Ólafur Jónsson, saxófónn
Ásgeir Ásgeirsson, gítar
Þorgrímur Jónsson, bassi
Erik Qvick, trommur
Um tónleikana
Múlakvintettinn fagnar Alþjóðlega jazzdeginum ásamt fjölda
tónlistarfólks á tónleikum um heim allan. UNESCO
útnefndi þennan tiltekna dag, 30. apríl sem hinn opinbera dag jazzins árið
2011. Mottó dagsins er að jazztónlist getur í sínum mörgu og
fjölbreyttu myndum verið tákn sameiningar fyrir fólk af ólíkum uppruna og
frá öllum heimshornum sem hlustendur og/eða virkir þátttakendur. Á
tónleikum Múlans mun Múlakvintettinn leika fjölbreytt efni af
efnisskrám hljómsveitarinnar. Tónlist útsett fyrir tvo saxófóna og
rytmasveit þar sem dillandi flæði sveiflunnar ræður ríkjum.