Við setningu Myrkra músíkdaga 2025 frumflytja nemendur úr Skólahljómsveit Vestur- og Miðbæjar nýtt samsköpunarverk sem hópurinn hefur unnið að í vetur og samið sérstaklega í tilefni opnunar hátíðarinnar í ár. Setning hátíðarinnar fer fram í Hörpuhorni, gegnt Eldborgarsal á 2. hæð Hörpu og er viðburðurinn opinn öllum.
Stjórnandi hópsins og jafnframt leiðbeinandi verkefnisins er Ingi Garðar Erlendsson.
Verkefnið nýtur stuðnings Barnamenningarsjóðs.
Flytjendur
Nemendur úr Skólahljómsveit Vestur- og Miðbæjar
Ingi Garðar Erlendsson, stjórnandi