Scott McLemore´s Multiverse
Flytjendur
Andrés Þór Gunnlaugsson, gítar
Hilmar Jensson, gítar
Nico Moreaux, bassi
Scott McLemore, trommur
Um tónleikana
Árið 2019 tók Scott McLemore upp plötu sem var
innblásin af reynslu hans af því að spila með hinum goðsagnakennda
gítarleikara John Abercrombie, sem kallast "The Multiverse." Hún
er flutt af alþjóðlegri hljómsveit með tvo gítara, bassa og trommur. Eftir að
hafa gefið út tónleikaplötu með sveitinni árið 2021, hélt Scott áfram með
“Knowing” árið 2022, sem var tekin upp á miðri Evróputónleikaferð. Tónlistin,
þar á meðal svíta í fjórum hlutum, flýtur á melankólískum undirtónum en kallar
jafnframt fram von og gleði. Nú, þegar styttist í þriðju Multiverse plötuna,
tekur hljómsveitin enn á ný flugið með safni af nýrri frumsaminni tónlist sem
kannar samspil tveggja eins hljóðfæra sem bæði skapa andstæður og styðja hvort
annað.