Iris Kramer Quartet
Flytjendur
Iris Kramer, trompet, flugelhorn, söngur
Hlín Pétursdóttir Behrens, söngur
Jonas Oppermann, píanó
Henriette Thorunn, kontrabassi, rafbassi
Jan Hauf, slagverk
Um tónleikana
Iris Kramer, trompetleikari hefur komið víða við
á sínum tónlistarferli. Hún og stofnaði meðal annars fyrsta bigband Þýskalands
eingöngu skipað konum og hefur starfað sem tónlistarkennari og hljóðfæraleikari
á Vestfjörðum. Á síðari árum hefur hún sinnt tónsmíðum í auknum mæli og það var
á viðburði sem helgaður var konum í jazztónlist sem Henriette Thorunn
bassaleikari, nýútskrifuð úr jazzdeild tónlistarháskólans í Frankfurt, kynntist
tónlist Irisar. Upp úr því var stofnaður kvartett sem hélt fyrstu tónleikana í
Hamborg vorið 2023 og nú eru fjöldi spennandi verkefna framundan. Samstarf
reynsluboltans og nýgræðinganna gengur glimrandi vel, tónlistin er létt og
leikandi sveifla undir áhrifum frá íslenskri náttúru, veðurfari og menningu.
Kvartettinn flytur að mestu frumsamið efni, en einnig íslenska tónlist.
Sérstakur gestur á tónleikum er Hlín Pétursdóttir Behrens söngkona og kemur
hluti efniskrárinnar úr sameiginlegri smiðju þeirra Írisar og Hlínar.
Tónleikarnir eru styrktir af Þýska sendiráðinu á Íslandi, Íslendingafélaginu í Hamborg og Jazzbüro Baden Württemberg.