Skip to content

Tix.is

Harpa

Aflýst

Miðaverð:3.990 kr.

Um viðburðinn

Eyðibýli sálarinnar, söngtónleikar

Ingunn Hildur Hauksdóttir píanóleikari og Ólafur Freyr Birkisson bassi flytja Songs of Travel eftir Ralph Vaughan Williams í bland við ný íslensk söngljóð. Hið ljóðræna tónmál verður sett í samruna við sjónrænar hreyfimyndir Völu Sigþrúðar Jónsdóttur myndlistarkonu. Viðfangsefni tónleikanna er sveitarómantík, gleði og tregi íslensku eyðibýlanna og speglun þess við hinn innri heim lífverunnar. Hreyfimyndir Völu kallast á við lifandi tónlistarflutning Ólafs og Ingunnar þar er fjallað um himinn og jörð, náttúruna, vonina, söknuðinn, ástina og frelsið.

Flytjendur

Ólafur Freyr Birkisson bassi
Ingunn Hildur Hauksdóttir píanóleikari
Vala Sigþrúðar Jónsdóttir myndlistarmaður