Söng- og sjónlistakonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir og píanóleikarinn Bjarni Frímann Bjarnason flytja persónulega efnisskrá á hádegistónleikum í Eldborgarsal Hörpu laugardaginn 6. júlí kl. 12:00.
Á tónleikunum hljóma nokkur af þeirra uppáhaldslögum frá ólíkum heimshornum, þar á meðal nokkrar gersemar íslenskra söng- og þjóðlaga. Á tónleikunum hljóma lög eftir ýmis tónskáld, meðal annars Monteverdi, Purcell, Debussy, Jórunni Viðar, Hildigunni Rúnarsdóttur og Errollyn Wallen.
Gestum er boðið að sitja á sviðinu með flytjendum og njóta óvenjulegs útsýnis yfir hinn víðfeðma Eldborgarsal. Þar af leiðandi er takmarkaður fjöldi miða í boði.
Öll hjartanlega velkomin að njóta draumkennds hljóðheims í nánd við flytjendur í Hörpu.
Tónleikarnir eru um klukkutími að lengd og án hlés.
Sópransöngkonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins í flokknum sígild og samtímatónlist árið 2021. Árið 2019 þreytti hún frumraun sína í Staatsoper Berlin í hlutverki Mjallhvítar í óperunni Schneewittchen eftir Wolfgang Mitterer og hlaut einróma lof gagnrýnenda fyrir túlkun sína í hlutverki engilsins í óperunni St. François d’Assise eftir Olivier Messiaen í Theater Basel haustið 2020. Álfheiður Erla hóf fastráðningu sem einsöngvari við Theater Basel í Sviss haustið 2021 þar sem hún hefur farið með ólík hlutverk, m.a. í hlutverki Gildu í Rigoletto eftir Verdi, Drusillu í L’incoronazione di Poppea eftir Monteverdi, sópran einsöngshlutverk í Mattheusarpassíunni eftir Bach og í Einstein on the Beach eftir Philip Glass. Álfheiður Erla starfar einnig sem ljósmyndari og sameinar gjarnan sjónlistir og tónlist í verkum sínum. Álfheiður var nýlega valin ein af Echo’s Rising Stars 2025-26 og mun því koma fram á fjölmörgum tónleikum í helstu tónleikasölum Evrópu 2025-26.
Bjarni Frímann Bjarnason hefur komið víða við á tónlistarferli sínum. Hann lærði til lágfiðluleikara við Listaháskóla Íslands og síðar hljómsveitarstjórn við Hanns Eisler tónlistarháskólann í Berlín. Hann gegndi stöðu tónlistarstjóra Íslensku Óperunnar frá 2018 og staðarhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2018-2021. Hann um árabil verið eftirsóttur undirleikari og komið víða fram sem píanóleikari, meðal annars í Wiener Konzerthaus, Fílharmóníunni í Berlín og Wigmore Hall í London. Hann hefur verið stjórnandi á tónlistarferðalögum Bjarkar Guðmundsdóttur síðustu ár og komið frá með henni um allan heim. Bjarni Frímann starfar um þessar mundir sem hljómsveitarstjóri við Óperuna í Malmö og tekur við listrænni stjórn BIT20 kammersveitarinnar í Bergen á næsta ári.