Skip to content

Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Efnisskrá
Létt og leikandi tónlist fyrir allra yngstu hlustendurna

Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir
stjórnandi

Barnastundir Sinfóníuhljómsveitar Íslands njóta ævinlega mikilla vinsælda, enda rík áhersla lögð á vinalegt andrúmsloft, notalegheit og nánd við hljómsveitina. Á Barnastundum hljómar létt og leikandi tónlist sem hentar jafnvel allra yngstu hlustendunum og allri fjölskyldunni um leið. Börn og fullorðnir njóta samveru og tónlistar á þessum sannkölluðu gæðastundum, en dagskráin er um hálftímalöng. 

Skemmtilegar og lifandi kynningar milli verka opna heim tónlistarinnar enn frekar fyrir ungum sem öldnum og kunnugleg lög jafnt sem klassískir gimsteinar fá að hljóma í sinfónískum búningi. Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir heldur um tónsprotann að þessu sinni. Tónlistarmúsin sívinsæla, Maxímús Músíkús, er fastagestur á þessum tónleikum og jafnan tekið fagnandi af yngstu tónleikagestunum. 

Aðgangur er ókeypis, sækja þarf miða hér að ofan. Gott er að koma með púða fyrir smáfólkið sem gjarnan vill sitja fremst. 

Barnastund að vori verður haldin í Flóa, laugardaginn 1. mars kl. 11:30 og 12:45.