Skip to content

Tix.is

Harpa

  • Frá 14. desember
  • Til 15. desember
  • 4 dagsetningar

Miðaverð:3.900 - 4.700 kr.

Um viðburðinn

Sinfóníuhjómsveit Íslands

Hjörtur Páll Eggertsson
hljómsveitarstjóri

Trúðurinn Barbara
kynnir 

Ragnheiður Gröndal
Benedikt Kristjánsson
einsöngvarar 

Kolbrún Völkudóttir
einsöngur á táknmáli 

Stúlknakór Reykjavíkur og Kammerkórinn Aurora
Bjöllukórar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Tónstofu Valgerðar 

Dansarar úr Listdansskóla Íslands
Langspilssveit Flóaskóla

Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru tilvaldir fyrir jólabörn á öllum aldri. Tónleikarnir eru hátíðlegir að vanda og með dálítið þjóðlegu ívafi að þessu sinni þar sem íslenskar þjóðvísur mæta sígildum jólalögum og töfrandi tónlistarævintýrum, uppfullum af jólaanda. Nýr jólaforleikur prýddur íslenskum og erlendum þjóðlögum opnar dagskrá tónleikanna og söngvararnir Ragnheiður Gröndal, Benedikt Kristjánsson og Kolbrún Völkudóttir flytja fallegar jólaperlur. Kórarnir, ásamt dönsurum, flytja valda þætti úr Snjókarlinum, töfrandi jólaævintýri um vináttuna, eftir Howard Blake. Bjöllukórarnir sameina krafta sína í laginu Hátíð fer að höndum ein og Langspilssveitin strammar sjálft þjóðarhljóðfærið af miklum þrótti.
Kynnir á tónleikunum er trúðurinn Barbara, besta vinkona Halldóru Geirharðsdóttur leikkonu, sem kemur öllum í sannkallað hátíðarskap. 

Tónleikarnir eru túlkaðir á táknmáli.