Masood Boomgaard, einnig þekktur undir gælunafninu „Self-Help Singh“, er alþjóðlegur grínisti og öðruvísi lífsráðgjafi.
Grínistinn, “ekki-lífsþjálfinn” og skopstælingarsérfræðingurinn uppgötvaði hitt sjálfið sitt þegar hann var að flýta sér á klósettið eftir slæmt lambakjötsvindaloo og datt á hausinn. Síðan þá hafa myndbönd hans náð milljónum áhorfa á YouTube, TikTok og Instagram. Á sínum tíu ára ferli sem atvinnugrínisti hefur Masood Boomgaard komið fram í Dubai, New York, London og, tja… heima í eldhúsinu sínu, svefnherberginu og bílskúr föður síns.
Í dag býr Boomgaard með köttunum sínum í Suður-Afríku og deilir reglulega visku sinni, sem hann vill meina að byggist á heilbrigðri skynsemi, með milljónum aðdáenda sinna á netinu. En nú er hann aftur tilbúinn að ferðast um heiminn og þú getur séð hann koma fram á Íslandi!
Í sýningu sinni býður Boomgaard upp á fyndna, einstaka og ógleymanlega uppistands-/háðsýningu. Þetta er ekki neinn venjulegur fyrirlesari eða lífsþjálfi, en þú munt pottþétt fara út með bros á vör. Tryggðu þér miða núna!
Miðaverð er 9.990 kr. og eingöngu er selt í ónúmeruð sæti
Umsjón: Sena Live