Skip to content

Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Raggi Bjarna 90 ára

Við fögnum saman afmæli Ragnars Bjarnasonar, eins dáðasta  söngvara og skemmtikrafts þjóðarinnar, sem hefði orðið 90 ára þennan dag, 22. september.

Fjöldi frábærra tónlistarmanna og vinir Ragga munu heiðra minningu hans á sviði Eldborgar og flytja hans þekktustu lög í léttri stemmningu í anda afmælisbarnsins.

Það er óhætt að lofa eftirminnilegri kvöldstund sem enginn ætti að missa af!

Tónlistarstjóri: Jón Ólafsson

Kynnir: Þorgeir Ástvaldsson

Söngur:
Eyþór Ingi Gunnlaugsson
Guðrún Gunnarsdóttir
Óskar Pétursson
Lay Low
Páll Óskar Hjálmtýsson
Sigurður Guðmundsson

Hljómsveit:
Jón Ólafsson – Píanó
Ásgeir Ásgeirsson - Gítar
Einar Scheving - Trommur
Sigurður Flosason – Saxófónn og slagverk
Róbert Þórhallsson – Bassi
Ástvaldur Traustason harmonikka og hljómborð 

Umsjón: Dægurflugan ehf.