Elín Halldórsdóttir - The Multiverse
Það er komið að því að listagyðjan Elín Halldórsdóttir mun ásamt fríðu föruneyti stíga á svið í Kaldalónssal Hörpu þann 6. apríl næstkomandi kl. 18:00.
Elín hefur samið mikið af lögum fyrir börn og nokkra söngleiki og gaf Menntamálastofnun út eftir hana söngleikinn “Ævintýri Sædísar skjaldböku” sem fjallar um litla skjaldböku sem föst er í plasti 2019. Síðustu misseri hefur hún gefið út nokkur album sem SOUNDCLOUD dreifir á fjölda erlendra miðla og er streymið sívaxandi út um allan heim.
Hér má segja að um sé að ræða Debut Sóló tónleika Elínar með sínu eigin efni og er þar úr mörgu að velja en Elín ber á borð 15 af sínum vinsælustu og ástsælustu lögum. Lög eins og the Divine Feminine, Stay healthy, Pink rain, Dear moon, Angels, My Dragon, The Multiverse og fleiri.
Ólöf Sigríður Valsdóttir söngkona kemur fram með Elinu.
Hljómsveitina skipa; gítar, Vilhjálmur Guðjónsson, bassi, Haraldur Þorsteinsson, trommur, Ásgeir Óskarsson og Logi Kjartnsson á píanó og hljómborð.
Þetta eru tónleikar sem enginn unnandi dægurtónlistar ætti að láta framhjá sér fara.