Skip to content

Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Nýstofnaði norræni kórinn Young Nordic Opera Choir kemur fram á lokatónleikum Óperudaga sunnudaginn 29. október 2023 kl. 18.

Á efnisskránni eru perlur úr evrópsku óperubókmenntunum; kórar úr Turandot og Madame Butterfly (Puccini), Nabucco (Verdi), Fidelio (Beethoven) og Faust og Rómeó og Júlíu (Gounod). Með kórnum syngur baritónsöngvarinn Jóhann Kristinsson m.a. aríur úr Carmen (Bizet), Maskarade (Nielsen) ogCavalleria Rusticana (Mascagni). Um tónsprotann heldur hinn 31 árs Magnus Larsson sem hefur þegar tekið þátt í mörgum norrænum verkefnum, bæði á sviði óperu og sinfónískrar tónlistar. Louise Schrøder leikur á píanó.

Kórinn er skipaður ungum atvinnusöngvurum og langt komnum söngnemendum á aldrinum 18-35 ára frá öllum Norðurlöndunum en ungum söngvurum frá Norðurlöndunum gafst kostur á að sækja um stöðu í kórnum í vor. Kórinn þreytti frumraun sína á Óperuhátíðinni í Herning í Danmörku nú í ágúst en norræna samstarfsverkefnið varð að veruleika með tæplega 80 milljóna króna styrk frá A.P. Møller sjóðinum.

Þátttakendur

Kór ungra norrænna óperusöngvara

Jóhann Kristinsson, einsöngvari

Magnus Larsson, stjórnandi

Louise Schrøder, píanóleikari