Laugardaginn 28. október 2023 kl. 20:00
Mörsugur er ópera fyrir rödd með rafhljóðum og myndbandsverki, byggð á ljóðsögu eftir Ragnheiði Erlu Björnsdóttur. Ljóðsagan er brotakennd frásögn með útúrdúrum sem gerist í þjóðsagnakenndri íslenskri náttúru. Erkitýpurnar sem persónan er byggð á eru goðsagnakenndar kvenfyrirmyndir. Í verkinu er reynt að ná utan um þokukennt hugarástand konu sem er á milli heima, á milli ljóss og myrkurs og þar sem minningar og raunskynjun renna í eitt. Verkið er unnið í samsköpunarferli Ásbjargar Jónsdóttur, Heiðu Árnadóttur og Ragnheiðar Erlu Björnsdóttur. Myndbandsverk er eftir Ásdísi Birnu Gylfadóttur.
Þátttakendur:
Ásbjörg Jónsdóttir, tónskáld, píanóleikari og söngkona
Heiða Árnadóttir, söngkona
Ragnheiður Erla Björnsdóttir, tónskáld, ljóðskáld, raddlistakona
Ás Dís (Ásdís Birna Gylfadóttir), myndlistarkona