María Magnúsdóttir, söngur
Ösp Eldjárn, söngur
Andrés Þór Gunnlaugsson, gítar
Birgir Steinn Theodorsson, bassi
Erik Qvick, trommur
Söngkonurnar Ösp Eldjárn og María Magnúsdóttir syngja hugljúf íslensk jólalög í lágstemmdum og notalegum búning á þessum tónleikum, korter í jól. Tónleikarnir bera yfirskriftina Kertaljós og klæðin rauð og verða sönglagaperlur Ellýar Vilhjálms, Þriggja á palli og Ingibjargar Þorbergs reiddar fram ásamt fleiri uppáhalds jazz og jólalögum hljómsveitarinnar.