Fia er andlega þenkjandi söngvaskáld sem með hrífandi og áhrifamiklum textum sínum og grípandi laglínum heillar flesta sem á hana hlusta.
Fia hefur einstakt lag á að semja og flytja tónlist sem gerir hlustandanum kleift að kafa dýpra inn á við og finna sinn innri kraft. Fia og hennar tónlist eru nánast orðin að hreyfingu út af fyrir sig og er hún í dag með yfir 200.000 mánaðarlega hlustendur á Spotify. Fia leggur mikið upp úr því að halda nánu sambandi við fylgjendur á sínum samfélagsmiðlum og þetta samband skín í gegn á tónleikum hennar.
Þetta er í fyrsta sinn sem Fia kemur fram á Íslandi og það er með mikilli gleði sem hún býður okkur velkomin inn á sitt dulræna og magnaða svið,
Frá útgáfu fyrstu plötunnar „Made of Stars“ (2016) hefur Fia verið á tónleikaferðalagi um allan heim og snertir hún hjörtu fólks hvert sem hún fer. Í kjölfar útgáfu á plötunum „Legacy of Light" (2017) og „Waterfall of Wisdom" (2019) hefur Fia haslað sér völl meðal fremstu radda andlegu tónlistarsenunnar. Síðustu ár hefur Fia gefið út nokkrar EP-plötur, smáskífur og unnið í samstarfi við aðra listamenn.
Það er með tilhlökkun og þakklæti í hjarta sem við bjóðum
Fiu velkomna til Íslands!
website: https://fiasmusicofficial.com
Spotify: FIA
Instagram: thisisfiamusic
TikToK: thisisfiamusic