Ein af framsæknari hljómsveitum okkar Íslendinga síðari ára er án vafa rokksveitin Agent Fresco úr Reykjavík. Flókin og ágeng en jafnframt angurvær og ástríðufull tónlist þeirra hefur fallið vel í kramið hjá íslenskum tónlistarunnendum.
Hljómsveitin sendi nýverið frá sér sína aðra breiðskífu „Destrier“ sem hefur fengið einróma lof gagnrýnenda um allan heim.
Framundan eru svo heilmikil ósköp af tónleikum um Evrópu og mun sveitin svo stíga sín fyrstu skref innan landamæra Bandaríkjanna á næsta ári.
Agent Fresco ætlar að tjalda öllu til á þessum útgáfutónleikum sínum og flytja nýjustu plötu sína í heild sinni ásamt hinum ýmsu hljóðfæraleikurum til að skapa þann stóra hljóðheim sem býr yfir Destrier.