Skip to content

Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hljómsveitarstjóri
Nathanaël Iselin

Einleikari
Bára Gísladóttir

Efnisskrá
Bára Gísladóttir //VAPE
Bára Gísladóttir //Hringla
Bára Gísladóttir //her palms faced down forever after 

Bára Gísladóttir hefur vakið verulega athygli undanfarin ár fyrir frumlegar tónsmíðar sínar og hefur hlotið fjölda viðurkenninga, meðal annars hlaut hún nýverið þriggja ára tónsmíðastyrk danska ríkisins. Hugmyndin að verkinu VAPE spratt út frá árás sem fimm menn gerðu með taugagasinu sarin í neðanjarðarlestarkerfi Tókýó-borgar árið 1995, og er hljómsveitinni skipt í fimm hópa. Frá því að verkið var frumflutt árið 2016 hefur það farið víða, var meðal annars flutt á opnunarhátíð hinnar víðfrægu tónlistarhátíðar í Darmstadt í Þýskalandi.

Hringla er verk fyrir hljómsveit, rafmagnaðan kontrabassa og rafhljóð sem Bára frumflutti sjálf ásamt Fílharmóníusveit Kaupmannahafnar í febrúar 2022, sem nýr vinningshafi Gladsaxe-tónlistarverðlaunanna. Tónlistin skírskotar til margræðninnar í titli verksins, sem bæði getur merkt skrölt og glamur eða óstöðuglyndi og óákveðni. Halla Oddný Magnúsdóttir ræðir við Báru Gísladóttur í lok tónleikanna.


Myrkir músíkdagar